þriðjudagur, janúar 23, 2007

Nýársbjór!!!!!

Einhverjar hugmyndir?

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Takk fyrir síðast!

Næsta mál á dagskrá: Jólabjór, jólabjór, jólabjór...tillögur, hugmyndir?

miðvikudagur, október 18, 2006

Helga ætlar að bjóða okkur heim föstudaginn 10. nóvember kl. 18:30 að gettótíma. Ekki nóg með það heldur stendur til að bjóða upp á veitingar og fínirí - hvað var þetta nú aftur Helga - brúðarslæður, meyjaklútar eða stúlkubrauð...? Allavega, Helga verður með matreiðsluhorn í næsta þætti.

Athugið eftirfarandi atriði:

1. Allir verða að vera búnir að fá sér a.m.k. einn bjór og einn sjúss áður en þeir koma til Helgu (það má fá sér á leiðinni, þ.e. ef maður er ekki á bíl - sem leiðir að atriði nr. 2)
2. Enginn má vera á bíl! Leigubíll, strætó, reiðhjól, tveir jafnfljótir - það er málið
3. Allir verða að hafa kippu með af uppáhaldsbjórnum sínum. Þeir sem koma með eitthvað sterkara að auki fá óvæntan bónus - verðlaun í boði.
4. Sá sem á skemmtilegt partýspil skal hafa það meðferðis og sjá til þess að það verði spiluð a.m.k. ein umferð - verðlaun í boði.
5. Allir verða að hrósa brúðarmeyjunum hennar Helgu og éta með bestu lyst - hvort sem þeim líkar betur eða verr!
6. Stranglega bannað að atast í Ingibjörgu.

Vinsamlegast látið Helgu vita sem fyrst hvort þessi dagsetning hentar!

http://www.funrestarea.com/pages/good_beer2.shtml

http://www.funrestarea.com/pages/bud_light.shtml

miðvikudagur, október 11, 2006



októberfest á morgunn klukkan 16.

Bjór og bratwurst á línuna!

fimmtudagur, ágúst 31, 2006


Betribjór á Bugðulæknum!
Í dag klukkan 16:15.
Verið þar eða verið úti.

fimmtudagur, júní 01, 2006

Hver vill koma með í heimsókn til Helgu og Ingibjargar í næstu viku? Sendið á mig línu, bílferð getur verið innifalin:)

miðvikudagur, maí 10, 2006

Hittumst þriðjudaginn 16. maí 2006, kl. 17:15 á Kaffi Viktor!